|
Written by Administrator
|
|
Friday, 31 October 2008 |
|
Ég hef hugsað mér að halda óbreyttu verði, frá því í mars 2008, þrátt fyrir efnahagsbreytingar í þjóðfélaginu. Nú þrengir að í veskjum landsmanna og fólk er í streituvaldandi umhverfi. Þá má ekki gleyma að hugsa um sjálfan sig og heilsuna. Því mun verðskráin mín haldast eins lengi og mögulegt er í þessu horfi. Ekki gleyma 10% afslætti ef keyptir eru 5 eða fleiri tímar saman. Kreppukveðja Helga Dröfn |
|
|
Written by Helga Dröfn Jónsdóttir
|
|
Wednesday, 15 October 2008 |
|
Heilsunudd er rosalega góð fyrirbyggjandi meðferð. Alltof margir nota sér nudd sem “björgun” þegar allt er komið í flækju. Þegar allt er komið í óefni er eðli málsins samkvæmt erfiðara að vinna með vandamálið. Í nútímaþjóðfélagi fullu af stressi og asa erum við stanslaust undir álagi og að safna spennu útum allan líkamann. Þá er nauðsynlegt að gefa sér tíma til að hugsa um líkamann. Hægt er að hugsa um líkamann á mismunandi vegu og mismunandi aðferðir henta ólíku fólki. Nudd er eitt af því sem hentar mjög mörgum því nudd getur verið svo mismunandi. Þétt, létt, mjúkt, djúpt. Hreyfing er hlutur sem allir ættu að tileinka sér, á einn eða annan hátt. Hreyfing er ekki eingöngu til að grennast (eins og sumir trúa), heldur -fyrst og fremst- til að styrkja líkamann og auka blóðflæði um vefina. Það er slakandi að hreyfa sig og auðveldar líkamanum að losa sig við úrgangsefni sem orsaka oft á tíðum “vöðvabólgu” og stífleika. |
|
|
Written by Helga Dröfn Jónsdóttir
|
|
Sunday, 31 August 2008 |
|
Haustið komið og starfsemin er komin á fljúgandi siglingu eftir sumarið. Ég minni á gjafabréfin sívinsælu. Hvað er notalegra en að fá nudd í jóla- eða afmælisgjöf!! Hafið það sem allra best í vetur. kveðja, Helga Dröfn Jónsdóttir Heilsunuddari |
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 Next > End >>
|
| Results 9 - 12 of 26 |