Um Helgu Dröfn Jónsdóttur heilsunuddara Print
Written by Helga Dröfn Jónsdóttir   
Wednesday, 19 September 2007

Helga Dröfn Jónsdóttir heilsunuddariHelga Dröfn útskrifaðist frá Nuddskóla Íslands 2002 og sem heilsunuddari frá Fjölbrautarskólanum við Ármúla árið 2003. Fékk meistararéttindi vorið 2005. Hefur starfað nær eingöngu við heilsunudd síðan.

 

Í Nuddskóla Íslands lærði hún klassískt nudd, svæðanudd, íþróttanudd, triggerpunktameðferð, ilmkjarnaolíu- og sogæðanudd, íþróttameiðsli, heildrænt nudd og kinesology.

 

Hefur starfað með Önnu Katrínu Ottesen sjúkraþjálfara í nokkur ár. Hefur starfað víða, s.s á Heilsubrunninum – sjúkranuddstofu og Dong Fang – kínverskri fótanuddstofu á Hótel Loftleiðum.

 

Fór á námskeið hjá Larry Koliha í Advanced Myofascial Techniques – háls, kjálki, höfuð, whiplash, mjaðmir, handleggir og axlir.

 

Lærði grunninn í Chi Nei Tsang hjá Önnu Katrínu Ottesen sjúkraþjálfara

 

Um mitt ár 2009 tók Helga Dröfn fyrsta námskeiðið í Cranio Sacral Therapy, CSTI, eða Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð. Stefnir á að taka næsta námskeið, CSTII, í nóvember sama ár.

 

Situr í stjórn Félags íslenskra heilsunuddara og er félagi í Bandalagi íslenskra græðara.

Er skráður græðari frá miðju ári 2007