Jólaösin
Höfundur: Helga Dröfn Jónsdóttir   
Sunday, 29 November 2009
- Langar þig í jólanudd? Nú fer hver að verða síðastur að bóka heilsunudd fyrir jól og/eða milli jóla og nýárs. Minni einnig á heilsunudd í jólagjöf - er með gjafakort í jólagjafir. Heilsunudd hefur verið vinsæl jólagjöf undanfarin ár og sækir sífellt á í hinar ýmsu tækifærisgjafir. Hafðu samband tímanlega.
 
- Úr í óskilamunum. Getur verið að þú hafir gleymt úrinu þínu hjá mér? Hafðu samband.
 
Hækkun á gjaldskrá
Höfundur: Helga Dröfn Jónsdóttir   
Sunday, 16 August 2009

Nú er komið að því að heilsunuddarinn verður bara að hækka. Því miður!
Ég hef ákveðið að hækka hjá mér verðið en auka á móti við afsláttinn fyrir þá sem kaupa 5 eða 10 tíma kort. Áður var 10% afsláttur af kortum en nú verður hann 15%. Hækkunin tekur gildi 1. september. Verðin má sjá í Verðskránni.

kveðja, Helga Dröfn

 
Síðsumar
Höfundur: Helga Dröfn Jónsdóttir   
Wednesday, 05 August 2009
Þá er verslunarmannahelgin liðin og farið er að rökkva á ný!
Við Íslendingar höfum verið heppin með þetta sumar - enda áttum við það skilið, finnst okkur amk. Jahh við höfum í það minnsta verið heppin hérna á suðvesturtánni. Ekki víst að norðausturhornið sé sammála.
Ágústfríi hefur verið frestað fram í október, svo nægur er tíminn fyrir þá sem vilja. Reyndar fyllist alltaf allt fljótt, en um að gera að hafa samband ef þú heldur að ég geti gert eitthvað fyrir þig. Oft losna tímar með stuttum fyrirvara og breytingar eru sífellt að eiga sér stað.
Ég mæli þó alltaf með því að fólk nýti sér nudd sem forvörn en ekki sem skyndilausn þegar allt er komið í hnút. Hugsum því fram í tímann því það er hollara en að taka á vandamálum sem eru komin - jafnvel til að vera....
Helga Dröfn - Heilsuhvoli - s. 822-0929
 
Meira...
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 4 af 24